Tilurð huts.is á rætur sínar að rekja til erfiðleika við að reyna að hafa upp á rekstraraðilum fjallaskála. Vefurinn var stofnaður til að einfalda bókunarferlið fyrir ævintýragjarnt fólk eins og þig. Huts.is er í eigu og rekstri Selkots ehf.
Stofnendur huts.is töldu að hefðbundnar bókunarvélar stæðu ekki undir væntingum þegar kæmi að því að veita aðgang að gistingu í náttúru Íslands. Oftar en ekki var úrval gististaða ekki miðuð við ferðalög þar sem náttúran er í forgrunni heldur var áherslan á ferðamenn og greiðan aðgang í gegnum malbikaða vegi. Huts.is var stofnað til að breyta þessu — með því að bjóða upp á bókunarvettvang sem einblínir alfarið á gistingu í nánum tengslum við náttúruna – þar sem aðgangur getur verið takmarkaður sökum staðsetningar og veðurfars.
Frá fjallaskálum á þekktum ferðasvæðum til afskekktrar gistingar í óspilltri náttúru landsins – huts.is sameinar vandað úrval staða þar sem náttúran er ekki bara í nágrenninu – heldur sjálf aðalatriðið.
Kennitala
560924-2590
VSK númer
155392
Það hefur aldrei verið eins einfalt að undirbúa íslenskt ævintýri eins og nú
Hvort sem þú ert að skipuleggja nokkurra daga göngu um hálendi Íslands eða leita að notalegri náttúrugistingu, þá veitir huts.is þér fljótlegan aðgang að sumum af afskekktustu, fallegustu og stundum "ekki eins" fallegum skálum landsins.
Auðveld og hnökrulaus bókun
Notaðu bókunarvélina okkar til að tryggja dvölina þína með nokkrum smellum..
Vandað úrval fjallaskála og gistinga
Uppgötvaðu einstaka gistingu á stórkostlegum stöðum, handvalin sérstaklega fyrir þig!