Suðurland
Rjúpnavellir skáli 2
Skálinn var byggður árið 2004, panelklæddur, bjartur og notalegur. Svefnpokapláss fyrir 18 manns. Það eru svefnbálkar í aðalsalnum fyrir 14 manns og í sérherbergi er hjónarúm ásamt tveimur kojum. Skálinn er hitaður með kamínu og rafmagnsofni. Það eru tvö salerni, rafmagn og kalt vatn. Góð forstofa og rúmgóð verönd. Klósettpappír fylgir alltaf með skálanum. Það er rúmgott eldhús með ísskáp/frysti, gaseldavél, uppþvottavél og bakaraofni. Almennur eldhúsbúnaður, pottar og ketill fylgja með. Borð og bekkir fyrir 20 manns.
Rafmagn
Gæludýr leyfð
Wi-Fi ekki í boði
Sturta
Staðsetning
Eigandi hússins
Rjúpnavellir ehf.
Hæð yfir sjávarmáli
200 mys
Aðstaða:
Salerni innangengt
Kamína og rafmagnskynding
Allur eldhúsbúnaður
Rafmagn
Ísskápur
Uppþvottavél
Sturta yfir sumartímann
Verð og afbókunarskilmálar:
Verð fyrir gistingu í skálanum árið 2025 er 7.750 ISK m/vsk.
Lágmarksbókun er fyrir 5 manns.
Almennir afbókunarskilmálar huts.is gilda.
Opnunartími og aðgengi
Opið er fyrir bókanir í skálann allt árið en enginn skálavörður er yfir vetrartímann, 1. október til 30. apríl.
Nálægar náttúruperlur og skálar
Skálinn er í nágrenni við Heklu og nálægt Dómadalsleið.








